Elías Jónatansson
Netfang: elias@bolungarvik.is
Sími á skrifstofu: 450 7000
Farsími: 892 4461
___________________________
Elías Jónatansson er bæjarstjóri í Bolungarvík. Hann fæddist í Bolungarvík árið 1959. Elías lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði og lauk síðan prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Þaðan hélt hann í nám í Bandaríkjunum og lauk MSc. prófi í iðnaðarverkfræði frá Oregon State University með viðskiptafræði sem aukafag. Elías vann við verkfræðistörf fyrstu árin eftir nám, hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen í Reykjavík. Hann flutti heim til Bolungarvíkur 1988 og hefur búið þar síðan ásamt fjölskyldu sinni. Elías hefur starfað við og stýrt framleiðslufyrirtækjum sem öll tengjast sjávarútvegi eða matvælaframleiðslu á einhvern hátt. Þá hefur hann einnig starfað við ýmis ráðgjafarstörf. Elías hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2002 og var forseti bæjarstjórnar frá 2002 til 2006. Í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga 2002-2006, í stjórn Íslandspósts hf frá stofnun 1998 til 2008. Í stjórn Gnár hf frá 1993 til 2008. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur 2005-2006, þegar lífeyrissjóðurinn sameinaðist Frjálsa lífeyrissjóðnum. Í stjórn Frjálsa Lífeyrissjóðsins frá 2007. Þá hefur Elías starfað við ýmis félags- og nefndarstörf í Bolungarvík. Elías er kvæntur Kristínu G. Gunnarsdóttur og eiga þau þrjú börn.



.jpg)