Websmith stjórnhluti - innskráning
Gjaldskrár Bæjarstjórn Bæjarstjóri Bæjarskrifstofa Bæjarmálasamþykkt Fjármál Umsóknir og eyðublöð Nefndir og ráð Nefndir- fundarskipulag Umhverfismálaráðs Hljóðupptökur af fundum bæjarstjórnar Starfsmannastefna Starfsfólk Skipurit Fyrir fjölmiðla
Íbúaþjónusta Félagsþjónusta Ferðaþjónusta
Landupplýsingarkerfi Bolungarvíkur Auglýsingar Aðalskipulag Bolungarvíkurkaupstaðar 2008 - 2020 Hvað er aðalskipulag Samráð Gögn fyrir skipulagshópa
Áhaldahús Bolungarvíkurhöfn Bókasafn Félagsmiðstöð Grunnskóli Íþróttamiðstöðin Árbær Leikskóli Listasmiðja Slökkvilið Tónlistarskóli Vinnuskóli
Fyrirtækin í bænum Ástarvikan Markaðsdagurinn Sjómannadagurinn Heilsubærinn Ósvör Náttúrugripasafnið Ágrip af sögu Bolungarvíkur
Menning og mannlíf
Náttúrugripasafnið

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur             http://www.natturugripasafn.is/


Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er hið fyrsta sinnar tegundar á Vestfjörðum. Sýningarsalurinn er yfir 300 fermetrar og við hann er salur sem gerir það auðvelt að taka á móti hópum. Safnið og Náttúrustofa Vestfjarða eru í samtengdu húsi.

Náttúrugripasafnið er tileinkað Steini Emilssyni jarðfræðingi sem var lengi skólastjóri í Bolungarvík. Steinasafn hans er undirstaðan í steinasýningu safnsins og þar er gott yfirlit yfir íslenskar stein- og bergtegundir. Einnig er surtarbrandur sýndur á safninu.

Spendýrum og fuglum er gerð góð skil. Þegar inn er komið heilsar blöðruselsbrimill gestum en hvítabjörninn er ekki langt undan, umkringdur selum, refum, minkum og fuglum. Yfir 160 tegundir fugla eru á safninu auk fjölda afbrigða og aldursstiga. Þar eru flestar tegundir íslenskra fugla og margir flækingar að auki. Fuglasýningin er ein hin stærsta sinnar tegundar á landinu.

Á stærsta vegg safnsins er veggspjaldasýning um Hornstrandafriðlandið. Einnig eru öðru hverju settar upp ýmsar sýningar tengdar náttúrunni sem standa yfir í lengri eða skemmri tíma.

Náttúrustofa Vestfjarða sér um daglegan rekstur Náttúrugripasafns Bolungarvíkur. Starfsfólk hennar annast einnig leiðsögn og fræðslu fyrir safngesti og skólastofnanir á svæðinu.

   

Safnið er opið í sumar sem hér segir: 

                      Frá 6. júní til 16. ágúst 
         Opið alla daga frá 10:00 til 17:00 


                            Frá 15. júní til 30. ágúst 
              Opið um helgar frá 13:00 til 17:00 

 

              Annars er opið eftir samkomulagi

 

 

Aðgangseyrir:


600,- kr. fyrir fullorðna,

450,- kr. fyrir 67 ára og eldri

450,- kr. pr mann fyrir hópa á eigin vegum
Frítt fyrir börn 16 ára og yngri

 

 

Aðgangseyrir í Náttúrugripasafnið og Ósvör

900 kr. fyrir fullorðna
700 kr. fyrir eldri borgara

700 kr. fyrir hópa á eigin vegum

Fritt fyrir börn 16 ára og yngri

 

 

___________________________________ 

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur
Vitastígur 3 / Aðalstræti 21
s. 456 7207 - fax. 456 7351
nagr@nave.is
http://www.natturugripasafn.is

 

 

Forstöðumaður:
Þorleifur Eiríksson
the@nave.is