Websmith stjórnhluti - innskráning
Gjaldskrár Bæjarstjórn Bæjarstjóri Bæjarskrifstofa Bæjarmálasamþykkt Fjármál Umsóknir og eyðublöð Nefndir og ráð Nefndir- fundarskipulag Umhverfismálaráðs Hljóðupptökur af fundum bæjarstjórnar Starfsmannastefna Starfsfólk Skipurit Fyrir fjölmiðla
Íbúaþjónusta Félagsþjónusta Ferðaþjónusta
Landupplýsingarkerfi Bolungarvíkur Auglýsingar Aðalskipulag Bolungarvíkurkaupstaðar 2008 - 2020 Hvað er aðalskipulag Samráð Gögn fyrir skipulagshópa
Áhaldahús Bolungarvíkurhöfn Bókasafn Félagsmiðstöð Grunnskóli Íþróttamiðstöðin Árbær Leikskóli Listasmiðja Slökkvilið Tónlistarskóli Vinnuskóli
Fyrirtækin í bænum Ástarvikan Markaðsdagurinn Sjómannadagurinn Heilsubærinn Ósvör Náttúrugripasafnið Ágrip af sögu Bolungarvíkur
Menning og mannlíf
Ósvör

Sjóminjasafnið Ósvör

 http://www.osvor.is

 

 

Rétt eftir að Bolungarvík birtist þeim sem koma akandi frá Ísafirði er Sjóminjasafnið Ósvör á hægri hönd niðri við sjóinn, rétt við veginn. Skinnklæddi maðurinn í Ósvör - íslenski vermaðurinn, fiskimaðurinn - er löngu heimsfrægur og með árunum hefur hann orðið eitt af þekktustu táknum eða jafnvel kennileitum Vestfjarða.

Safnvörðurinn tekur á móti gestum, íklæddur búningi sem hæfir staðnum, lifandi minjasafni um útgerðarhætti fyrri tíma á Íslandi. Í vörinni framan við verbúðina er sjófær sexæringur en gangspil fyrir ofan, fiskur hangir í hjalli en uppi á lofti í verbúðinni eru flet vermanna. Niðri eru veiðarfæri, tól og tæki og vermaðurinn sýnir handbrögðin sem eitt sinn voru mörgum töm en eru nú flestum gleymd. Í Ósvör eru einnig salthús og fiskreitar.

Sjóminjasafnið í Ósvör er einstakt í sinni röð. Bolungarvík hefur verið nefnd elsta verstöð landsins og víst er að þar hefur verið útræði frá upphafi Íslandsbyggðar. Í Ósvörinni má gaumgæfa hvernig sjósókn á áraskipum og lífinu og starfinu kringum hana var háttað hérlendis um aldir. Núna hefur verið komið upp þjónustuhúsi á bílastæðinu ofan við safnið.

 

 

Safnið er opið í sumar sem hér segir:

 


                 Frá 6. júní til 16. ágúst 
            

        Opið alla daga frá 10:00 til 17:00 

            

          Utan þess tíma er opið samkvæmt samkomulagi -

                     safnvörður í síma:  892 -1616 

 

 
Aðgangseyrir:


600,- kr. fyrir fullorðna.

450,-. fyrir 67 ára og eldri
Frítt fyrir börn 16 ára og yngri.

 

 

Ósvör og Náttúrugripasafn

 

Ef keyptur er aðgangsmiði í Sjóminjasafnið Ósvör og í Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er aðganseyrir:

 

900,-  kr. fyrir fullorðna
700,-. kr. fyrir 67 ára og eldri
700,-  kr. pr. mann fyrir hópa á eigin vegum
Frítt fyrir börn 16 ára og yngri

 

 

Safnverðir:

Finnbogi Bernódusson
s: 892 1616

Jóhann Hannibalsson
s: 897 8486