Heilsubærinn Bolungarvík er forvarnarverkefni sem hefur verið í gangi í Bolungarvík um nokkurt skeið. Helsta markmiðið er að hver og einn finni til ábyrgðar gagnvart eigin heilsu. Í verkefninu taka þátt stofnanir, skólar, félagasamtök, fyrirtæki og bæjarfélagið sjálft. Sérstök framkvæmdanefnd skipuleggur starfið og þátttaka almennings eykst stöðugt.
Áfram Bolungarvík - Heilsubær á nýrri öld!
MARKMIÐ
Vekja almenning til ábyrgðar á eigin heilsu og umhugsunar um heilbrigða lífshætti.
Bæta þekkingu almennings á áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma og slysa.
Auka vilja og möguleika almennings til að lifa heilsusamlegu lífi.
Samhæfa starfskrafta og viðfangsefni eins og kostur er.
Auka þátttöku einstaklinga og samfélagsins í ákvörðunartöku um heilbrigðisþjónustu og veita upplýsingar um nýtingu þess fjármagns sem til staðar er fyrir heilbrigðisþjónustuna.
LEIÐIR
Markmiðum verkefnisins verður náð með því að:
Efla fræðslu og kynningu um hvað heilsuefling stendur fyrir.
Skipuleggja heilsueflingarverkefni er vekur fólk til ábyrgðar á eigin heilsu og breytir viðhorfum þeirra til heilbrigðra lífshátta.
Tryggja samvinnu við bæjaryfirvöld,skóla, atvinnulífið, einstaklinga og félagasamtök.
Veita íbúum upplýsingar um tekjuöflun og nýtingu fjármagns í heilbrigðisþjónustu.
Skipuleggja áætlanir og forgangsraða viðfangsefnum eftir þörfum samfélagsins.
Setja skýr markmið fyrir hvert viðfangsefni í samvinnu við viðkomandi aðila.
Meta árangur aðgerða og endurskoða viðfangsefnin.
Leggja áherslu viðfangsefni á sviði;
Manneldis
Hreyfingu
Vinnuverndar
Tóbaks og fíkniefnavarna
Slysavarna




.jpg)