Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017-2018.
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017-2018.
- Bolungarvík
- Akureyrarkaupstað (Grímsey og Hrísey)
- Borgarfjörð eystri
- Djúpavog
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 17/2018 í Stjórnartíðindum
- Vesturbyggð (Brjánslækur Patreksfjörður og Bíldudalur)
- Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
- Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði.
Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2018.