Fréttir
  • Lýðháskólinn á Flateyri

Bolungarvík styrkir nemanda til náms við Lýðháskólann á Flateyri

Kaupstaðurinn mun styrkja einn nemanda til náms við skólann með því að niðurgreiða skólagjöld, 200 þúsund fyrir hvora önn, fyrir skólaárið 2018-2019. 

Um plássið geta allir þeir einstaklingar sótt sem náð hafa 18 ára aldri í september á þessu ári og uppfylla eitthvert af eftirfarandi skilyrðum:

  • Einstaklingur búsettur í Bolungarvík
  • Einstaklingur sem telst brottfluttur Bolvíkingur
  • Einstaklingur er barn eða barnabarn íbúa Bolvíkinga eða brottfluttra Bolvíkinga.

Sótt er um skólaplássið á vef skólans.

Þegar sótt er um er nauðsynlegt að í umsókn sé tekið fram að sótt sé um styrk frá Bolungarvík.

Ákvörðun um val á umsækjendum verður í höndum Lýðháskólans á Flateyri. 

Nánari upplýsingar um námið og skólann er að finna á www.lydflat.is.

Upplýsingar veitir einnig Helena Jónsdóttir skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri í síma 661 7808 eða tölvupósti: skolastjori@lydflat.is.