Fréttir
  • Betri Bolungarvík

Hugmynd að betri Bolungarvík?

Framlengt, samfélagsvefur um hugmyndir verður opinn til og með 3. maí.

Betri Bolungarvík er samráðsverkefni íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í bænum árið 2018.

Betri Bolungarvík er þáttur í því að auka aðkomu íbúa að virkni sveitarfélagsins og efla lýðræði í Bolungarvíkurkaupstað. 

Verkefni af þessum toga kallast þátttökufjárhagsáætlun. Þeir íbúafundir sem haldir hafa verið í sveitarfélaginu eru t.d. annar þáttur í því að auka lýðræði í Bolungarvík.

Verkefnið er þrískipt:

1. Hugmyndir að verkefnum

Á sérstökum samfélagsvef geta íbúar lagt fram hugmyndir að verkefnum og reifað þær. Þegar safn verkefna liggur fyrir eru þau metin og í kjölfarið eru álitleg verkefni kostnaðargreind.

2. Valferli

Íbúum, 18 ára og eldri með lögheimili í Bolungarvík, er boðið að velja þau verkefni sem þeim líst best á í hópi kostnaðargreindra verkefna. Hver íbúi má aðeins velja einu sinni. Niðurstaða valferlisins er ráðgefandi fyrir stjórn bæjarins. 

3. Framkvæmd

Framkvæmdaáætlun fyrir valin verkefni er lögð fram á vef.

Áhersluþættir 

 

  • Heildarkostnaður verkefna verði 2 milljónir eða minna. 
  • Verkefnin eiga að varða umhverfi á bæjarlandi og vera innan þéttbýlis.
  • Verkefnin eiga að vera til fjárfestingar en ekki rekstrar.
  • Líftími fjárfestinga skal vera að lágmarki 5 ár.
  • Verkefnin eiga að vera í samræmi við skipulag.
  • Verkefnin eiga að vera að fullu á forræði Bolungarvíkurkaupstaðar og geta ekki verið háð samráði eða samningaviðræðum við aðrar stofnanir eða sveitarfélög.
  • Matshópur fer yfir hugmyndir að verkefnum og ákveður hvaða verkefni verða sett í valferli.
  • Viðmiðunardagur kjörskrár er 15. apríl 2018.
  • Þriggja manna kjörnefnd metur og telur atkvæði sem berast. 

Samfélagsvefur um hugmyndir að verkefnum verður opinn 18. apríl til og með 1. maí. 

Taktu þátt í betri Bolungarvík!