Fréttir
  • Skjaldarmerki Bolungarvíkur

Kjörfundur verður í félagsheimilinu

Kjörfundur hefst kl. 10:00 árdegis og stendur til kl. 21:00 síðdegis. 

Kjósendur geta kosið utan kjörfundar á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar í Ráðhúsi Bolungarvíkur við Aðalstræti 10-12 á opnunartíma þjónustumiðstöðvar á virkum dögum frá kl. 10:00 til kl. 15:00 og hjá sýslumönnum.

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is og kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar að Aðalstræti 10-12 á afgreiðslutíma þjónustumiðstöðvar frá kl. 10:00 til kl. 15:00.

Viðmiðunardagur kjörskrár var 5. maí 2018. Flutningur lögheimilis eftir viðmiðunardag kemur ekki fram í kjörskrá. 

Kjósandi skal gera grein fyrir sér á kjörfundi, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar.

Talning atkvæða fer fram að loknum kjörfundi í Félagsheimili Bolungarvíkur. 

Kjörstjórn beinir þeim tilmælum til kjósenda að taka hvorki tölvur, síma, myndavélar eða annan upptökubúnað inn á kjörfund og það sama gildir um veski og handtöskur. Í boði verða viðeigandi geymslur fyrir kjósendur að varðveita þessa hluti meðan kosið er.

Kjörstjórn Bolungarvíkur 
8. maí 2018