Vinnuskólinn í Bolungarvík (2008)
Vinnuskólinn í Bolungarvík er fyrir unglinga hafa lokið 8. - 10 bekk. Tilgangur vinnuskólans er að skapa ungu fólki atvinnu og kenna þeim verklag og veita þeim tilfinningu fyrir atvinnu.
Tryggt er að allir unglingar sem hafa lokið 8. - 10. bekk, hafa lögheimili í Bolungarvík eða eiga foreldra með lögheimili í Bolungarvík komist að í vinnuskólanum. Aðrar umsóknir verða metnar hverju sinni.
Fyrirkomulag
Verkefnastjóri Félagsþjónustu við Djúp veitir vinnuskólanum forstöðu, verkstjóri starfar með ungmennunum á vettvangi og sér til þess að allt fari vel fram, reglum sé fylgt, leiðbeinir unglingunum um verklag og sér um almenna verkstjórn.
Vinnutími Vinnuskólans er frá 8:00 – 14:00 virka daga frá 5. júní til 18. Júlí.
Kaffitímar eru klukkan 10:00 í 15 mín og matartími er kl 12:00 í 30 mín. Ætlast er til að unglingar komi með nesti til matar og kaffitíma.
Verkefni
Verkefni vinnuskólans eru flestum úthlutað af áhaldahúsi Bolungarvíkurkaupstaðar auk annarra verkefna sem koma uppá hverju sinni. Leitast verður við að verkefni séu áhugaverð og fjölbreytt, þar sem flestir geta fengið að njóta sín. Unglingar sem eiga í félagslegum vanda að einhverjum toga verður leynt og ljóst liðsýnt í starfinu, auk annarra unglinga. Verkstjóri sér um að skipta í hópa til ákveðinna verkefna. Viðeigandi fatnaður skal hafður í samræmi við veður og verkefni hverju sinni.
Tillit er tekið til sérstakra aðstæðna unglinga við val á verkefnum, verður slíkt metið hverju sinni.
Reglur
Krafa er gerð til þeirra sem starfa í vinnuskólanum þeir sýni dugnað og leggi sig fram til þeirra verkefna sem fyrir liggja.Einelti eða annað ofbeldi ekki liðið, verði vart við slíkt grípur starfsfólk til viðkomandi aðgerða. Neysla á áfengi eða öðrum vímuefnum er litin mjög alvarlegum augum og er hún með öllu óheimil í öllu starfi, og matar og kaffihléum. Notkun farsíma er með öllu óheimil. Unglingum bera að sýna hvor öðrum, yfirmönnum og hverjum sem á vegi þeirra verður almenna kurteisi. Unglingar í Vinnuskóla er óheimilt að fara frá vinnu á vinnutíma.
Ítrekuð eða alvarlegt brot á reglum varða brottrekstur í lengri eða skemmri tíma.
Verkefnastjóra og verkstjóra er heimilt að breyta reglum vinnuskólans ef þörf er á, verður það tilkynnt með formlegum hætti ef til kemur.
Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide


