Websmith stjórnhluti - innskráning
Stofnanir
Leikskóli

 

 

 

Leikskólinn Glaðheimar

Hlíðarstræti 16 415 Bolungarvík

 

 

 

 

Leikskólastjóri:

Ragnheiður I. Ragnarsdóttir
gladh@bolungarvik.is

 

 

Aðstoðarleikskólastjóri:
Guðfinna Magnúsdóttir

 

Heimasíða leikskólans

 

http://www.leikskolinn.is/gladheimar


Fjöldi barna: 50

Fjöldi deilda: 4

Fjöldi leikskólakennara: 4

Fjöldi annarra starfsmanna: 8
Opnunartími: 07:45 - 16:15



Vistunartími sem í boði er: 
Minnst er hægt að kaupa 4 tíma og mest 8,5 tíma. 

 

 

Boðið er upp á ávaxtahressingu á morgnana, heitan mat í hádegi og síðdegishressingu.

 

 

Reglur um úthlutun leikskólaplássa
1.gr.
Skilyrði fyrir leikskóladvöl barns er að lögheimili þess og fjölskyldu þess sé í Bolungarvík. Foreldrar sem hyggjast flytja til Bolungarvíkur geta sótt um dvöl fyrir barn sitt í leikskóla bæjarfélagsins, en barn fær ekki úthlutað plássi fyrr en lögheimili hefur verið flutt.
2.gr.
Á meðan leikskólapláss eru takmörkuð þá raðaðst börn á biðlista eftir úthlutun. Að meginreglu þá raðast börn á biðlista eftir aldri. Miðað er við að hægt sé að bjóða börnum leikskólapláss um tveggja ára aldur.
3.gr.
Hægt er að sækja um forgang barns við úthlutun af biðlista. Eftirtaldir hópar eiga rétt á forgang:
• Fötluð börn og börn með sérþarfir. Skila þarf vottorði frá sérfræðingi um fötlun eða sérþarfir barnsins.
• Börn þar sem alvarleg veikindi eða fötlun er innan fjölskyldu þess. Skila þarf vottorði frá sérfræðingi um aðstæðurnar.
• Börn foreldra undir lögaldri (yngri en 18 ára).
• Börn foreldra sem hafa á framfæri 3 eða fleiri börn á aldrinum 0 – 6 ára.
• Börn þar sem félagslegir erfiðleikar eru innan fjölskyldunnar, s.s. barnaverndarafskipti eða annar félagslegur vandi að mati starfsmanns félagsþjónustu.
• Leikskólastjóri getur sótt um forgang fyrir börn starfsfólk leikskólans ef hann telur sérstaka þörf á. Umsókn skal fylgja rökstuðningur fyrir beiðninni.
Leikskólastjóri og félagsmálastjóri afgreiða umsóknir um forgang í sameiningu. Hægt er að áfrýja ákvörðun þeirra til Fræðslumálaráðs Bolungarvíkur, og skal það gert innan 4ra vikna frá því að svar við umsókn barst.

Samþykkt í fræðslumála- og æskulýðsráði 3 nóvember 2008 og í bæjarstjórn 20 nóvember 2008


Sjá vefslóð


Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide