Websmith stjórnhluti - innskráning
Menning og mannlíf
Náttúrugripasafnið

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur         
 heimasíða safnsins    http://www.nabo.is/


Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er hið fyrsta sinnar tegundar á Vestfjörðum. Sýningarsalurinn er yfir 300 fermetrar og við hann er salur sem gerir það auðvelt að taka á móti hópum. Safnið og Náttúrustofa Vestfjarða eru í samtengdu húsi.

Náttúrugripasafnið er tileinkað Steini Emilssyni jarðfræðingi sem var lengi skólastjóri í Bolungarvík. Steinasafn hans er undirstaðan í steinasýningu safnsins og þar er gott yfirlit yfir íslenskar stein- og bergtegundir. Einnig er surtarbrandur sýndur á safninu.

Spendýrum og fuglum er gerð góð skil. Þegar inn er komið heilsar blöðruselsbrimill gestum en hvítabjörninn er ekki langt undan, umkringdur selum, refum, minkum og fuglum. Yfir 160 tegundir fugla eru á safninu auk fjölda afbrigða og aldursstiga. Þar eru flestar tegundir íslenskra fugla og margir flækingar að auki. Fuglasýningin er ein hin stærsta sinnar tegundar á landinu.

Á stærsta vegg safnsins er veggspjaldasýning um Hornstrandafriðlandið. Einnig eru öðru hverju settar upp ýmsar sýningar tengdar náttúrunni sem standa yfir í lengri eða skemmri tíma.

Náttúrustofa Vestfjarða sér um daglegan rekstur Náttúrugripasafns Bolungarvíkur. Starfsfólk hennar annast einnig leiðsögn og fræðslu fyrir safngesti og skólastofnanir á svæðinu.

   

 

 

 

___________________________________ 

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur
Vitastígur 3 / Aðalstræti 21
s. 456 7207 - fax. 456 7351
nabo@nabo.is
http://www.nabo.is

 

 

Forstöðumaður:
Þorleifur Eiríksson
the@nave.is

 

 

 

 



Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide