Websmith stjórnhluti - innskráning
Menning og mannlíf
Ósvör

Sjóminjasafnið Ósvör

      heimasíða safnsins    www.osvor.is

 

 

Rétt eftir að Bolungarvík birtist þeim sem koma akandi frá Ísafirði er Sjóminjasafnið Ósvör á hægri hönd niðri við sjóinn, rétt við veginn. Skinnklæddi maðurinn í Ósvör - íslenski vermaðurinn, fiskimaðurinn - er löngu heimsfrægur og með árunum hefur hann orðið eitt af þekktustu táknum eða jafnvel kennileitum Vestfjarða.

Safnvörðurinn tekur á móti gestum, íklæddur búningi sem hæfir staðnum, lifandi minjasafni um útgerðarhætti fyrri tíma á Íslandi. Í vörinni framan við verbúðina er sjófær sexæringur en gangspil fyrir ofan, fiskur hangir í hjalli en uppi á lofti í verbúðinni eru flet vermanna. Niðri eru veiðarfæri, tól og tæki og vermaðurinn sýnir handbrögðin sem eitt sinn voru mörgum töm en eru nú flestum gleymd. Í Ósvör eru einnig salthús og fiskreitar.

Sjóminjasafnið í Ósvör er einstakt í sinni röð. Bolungarvík hefur verið nefnd elsta verstöð landsins og víst er að þar hefur verið útræði frá upphafi Íslandsbyggðar. Í Ósvörinni má gaumgæfa hvernig sjósókn á áraskipum og lífinu og starfinu kringum hana var háttað hérlendis um aldir. Núna hefur verið komið upp þjónustuhúsi á bílastæðinu ofan við safnið.

 

 

 

 

Ósvör og Náttúrugripasafn

 

Ef keyptur er aðgangsmiði í Sjóminjasafnið Ósvör og í Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er aðganseyrir:

 

 

  

 

 

 

 

 



Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide