Websmith stjórnhluti - innskráning
Umhverfi
Aðalskipulag Bolungarvíkurkaupstaðar 2008 - 2020

 

Samþykkt aðalskipulag Bolungarvíkurkaupstaðar 2008 - 2020 

 

Skipulagsuppdráttur (A1)

Skipulagsgreinargerð
Skipulagsgreinargerð viðauki A

Skipulagsgreinargerð viðauki B

Skipulagsgreinargerð viðauki C

 


__________________________________________________________

Tillaga að aðalskipulagi Bolungarvíkurkaupstaðar   2008 - 2020   
 

Tillaga að skipulagsuppdrætti (september 2010)
Tillaga að skipulagsgreinargerð (september 2010)
Tillaga að skipulagsgreinargerð - viðaukar (september 2010)

____________________________________________________

 


________________________________________________________

Gögn úr vinnuferli aðalskipulags:
________________________________________________________


Vinna við gerð aðalskipulags Bolungarvíkur fyrir tímabilið 2008-2020 er nú komin vel á veg.

Fyrra aðalskipulag Bolungarvíkur, sem náði yfir tímabilið 1980-2000, tók aðeins til þéttbýlisins. Fyrirhugað aðalskipulag mun hins vegar ná til þéttbýlis og dreifbýlis.

Lokaafurð verkefnisins verður þrískipt:

     ° Skipulagsgreinargerð
     ° Uppdráttur af þéttbýli
     ° Uppdráttur af dreifbýli

Samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila er einn af hornsteinum í skipulagsvinnu sem þessari. Til að tryggja sem besta niðurstöðu er mikil áhersla lögð á virka þátttöku þessara aðila í skipulagsvinnunni. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um samráðið hér á síðunni.


Staðan

 

  • September 2009: Skipulagshópur fundar tvisvar. Umhverfismálaráð fjallar ítarlega um aðalskipulagið á fundum sínum.
  • Maí -Ágúst 2009: Skipulagshópur fundar í júní þar sem m.a. var rætt um hverfisvernd í þéttbýli og dreifbýli, miðbæinn, skógrækt, urðunarstað, gatnakerfi, veitumannvirki og hesthúsahverfi. Samræming á stefnu og frágangur á lausum endum.
  • Október 2008-apríl 2009: Frekari vinna við greinargerð og uppdrætti í samræmi við niðurstöður skipulagshóps og umfjöllun nefnda í Bolungarvík. Á sama tíma er unnið viðamikið deiliskipulag á Bjarnarbúðerreit og við Hólsá. Samræming deiliskipulaganna og aðalskipulagsins.
  • Júní-september 2008: Lokið við að afla nauðsynlegra grunngagna og áfram unnið að greinargerð og uppdrætti. Þann 19. ágúst fóru skipulagsráðgjafar ásamt bæjarráði yfir framgang og áætlun skipulagsvinnunnar. Drög að uppdrætti (útgáfa frá ágúst 2008) má finna hér á heimasíðunni ásamt greinargerð frá í maí 2008. Áætlað er að kynna skipulagstillöguna fyrir almenningi í nóvember.
  • Maí 2008: Fyrstu drög að skipulagsuppdrætti og uppfærð greinargerð lögð fram. Skipulagshópur fundar 7. maí. Nefndir skila niðurstöðum stefnumótunarvinnu 6. Maí.
  • Janúar-apríl 2008: Ráðgjafar vinna með uppdrátt og greinargerð og afla nauðsynlegra grunnupplýsinga. Stefnumótun nefnda í málaflokkum aðalskipulagsins.
  • Nóvember-desember 2007: Fundir og stefnumörkun skipulagshóps. Ráðgjafar afla nauðsynlegra grunnupplýsinga.
  • Október 2007: Drög að skipulagstillögu.
  • September 2007: Grunnur að skipulagstillögu skipulagshóps. Stefnumótun nefnda í málaflokkum aðalskipulagsins.
  • Ágúst 2007: Grunnvinna skipulagshópa.
  • Júlí 2007: Ýmis konar grunnvinna skipulagsráðgjafa.
  • 19. júní 2007 var fyrsti fundur skipulagshóps haldinn. Nánari upplýsingar um hópinn er að finna hér á síðunni.
  • Í maí 2007 var unnið að undirbúningi vegna skipulagshóps.
  • Janúar - apríl 2007 unnu nefndir og ráð Bolungarvíkur að stefnumótun í þeim málaflokkum sem til umfjöllunar eru í aðalskipulaginu.
  • 10. febrúar 2007 var haldið íbúaþing í Bolungarvík. Þar var fjallað um helstu málaflokka aðalskipulagsins og verða niðurstöður þingsins notaðar sem grunnur að frekari vinnu við aðalskipulagið. Niðurstöður þingsins má finna hér á síðunni.
  • Haustið 2006 var vinnan við aðalskipulagið kynnt í Bolungarvík og kallað var eftir þátttöku íbúa og hagsmunaaðila við gerð skipulagsins.
  • Í september 2006 var lokið við Áfangaskýrslu 1 sem fjallar um gögn og aðferðir. Hana má nálgast hér á síðunni.
  • Sumarið 2006 hófst formleg vinna við Aðalskipulag Bolungarvíkur 2008-2020.

 

 

Mikilvæg skjöl:

 

 

 

 

 

  

Tenglar á aðrar síður:

Hvað er aðalskipulag?

Samráð

Gögn fyrir skipulagshópa

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  •  

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

 



Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide