Websmith stjórnhluti - innskráning
Umhverfi
Samráð

Í skipulags- og byggingarlögum og skipulagsreglugerð kemur fram að leita skuli eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa og annarra sem eiga hagsmuna að gæta um mörkun stefnu og skipulagsmarkmið.

Sérstök áhersla verður lögð á að hafa skipulagsferlið opið og með gagnkvæmu upplýsingastreymi á milli aðila sem málið varðar. Þannig er vonast til að tilvonandi skipulagstillaga njóti víðtæks stuðnings og auðveldara verði að hrinda henni í framkvæmd.

Eftirfarandi tæki verða, auk vefs Bolungarvíkur, einkum notuð til að virkja íbúa og hagsmunaaðila til þátttöku í aðalskipulagsvinnunni.

-Póstkassi þar sem hægt verður að skila miðum með ábendingum.
-Bæklingar með kynningu á aðalskipulagi og vinnuferli þess í stuttu máli.
-Fundir með stofnunum, íbúum og fulltrúum hagsmunaaðila.
-Dreifibréf
-Skipulagshópur

Skipulagshópur
Hlutverk skipulagshópsins er að kynna hagsmuni og sjónarmið hagsmunaaðila í Bolungarvík. Hópurinn mun vinna að skipulagstillögu sem mætir þörfum hagsmunaaðila án þess að skerða náttúruleg og menningarleg verðmæti svæðisins.

Skipulagsráðgjafi mun færa niðurstöður skipulagshópsins í ,,lögformlegan búning” en Bæjarstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar samþykkir endanlega skipulagstillögu.

Á meðal þeirra mála sem verða til umræðu eru:

• Verndun náttúru og menningarverðmæta
• Byggðamál
• Atvinnumál
• Samgöngumál
• Veitur og sorp
• Félags- og velferðarmál
• Opin svæði og útivist

Samsetning skipulagshópsins hefur verið ákvörðuð í samráði við hagsmunaaðila.
Nauðsynlegt er að takmarka stærð hópsins svo starfshæfni hans verði góð en fulltrúarnir eru málsvarar mikils fjölda manna og sjónarmiða. Þeir eru eftirfarandi (varamenn eru innan sviga):

• Bolungarvíkurkaupstaður:

  • Formaður umhverfismálaráðs, Sölvi R. Sólbergsson (Katrín Gunnarsdóttir)

• Félagsmál og íbúar

  • Foreldrafélag Grunnskóla Bolungarvíkur
  • Félag eldri borgara, Valdimar Lúðvík Gíslason
  • Fatlaðir, Falur Þorkelsson

• Íþrótta- og útivistarfélög

  • HSB, Baldur Smári Einarsson (Rögnvaldur Magnússon)
  • Hestamannafélagið Stormur, Jóhann Bragason (Jón Guðni Guðmundsson)
  • Heilsubærinn Bolungarvík, Ragnheiður Ragnarsdóttir

• Ferðaþjónusta

  • Ferðamálasamtök Bolungarvíkur, Haukur Vagnsson

• Land- og húseigendur í Skálavík

  • Hafþór Gunnarsson

• Landbúnaður

  • Sunna Reyr Sigurjónsdóttir, Ósi

• Sjávarútvegur

  • Daðey Einarsdóttir, sjávarútvegsklasa vaxtarsamnings Vestfjarða


Business Plan,Business Ideas,Advanced Energy,High Technology,Healthy Diets,Healthy Foods,Games Guides,Games Cheats,Travel Guides,Travel Tips,Study Skills,Study Tips,Health Tips,Health Guides,Jewelry Stores,Jewellery UK Online,Digital Camera Reviews,Digital Camera Buying Guide