Laus störf
  • Glaðheimar

Starfsmaður í eldhús og afleysingu

20.7.2018

Um er að ræða 50% stöðu í eldhúsi og 40% stöðu á deild. 

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn.

Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er einnig lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu og er verið að innleiða verkefnið Heilsueflandi leikskóli. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og VSB. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi á hollum matarvenjum og matseld æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst 2018. 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til 1. ágúst 2018.

Allar frekari upplýsingar veitir  Ragnheiður í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.