Samráđ

Í skipulags- og byggingarlögum og skipulagsreglugerð kemur fram að leita skuli eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa og annarra sem eiga hagsmuna að gæta um mörkun stefnu og skipulagsmarkmið.

Sérstök áhersla verður lögð á að hafa skipulagsferlið opið og með gagnkvæmu upplýsingastreymi á milli aðila sem málið varðar. Þannig er vonast til að tilvonandi skipulagstillaga njóti víðtæks stuðnings og auðveldara verði að hrinda henni í framkvæmd.

Eftirfarandi tæki verða, auk vefs Bolungarvíkur, einkum notuð til að virkja íbúa og hagsmunaaðila til þátttöku í aðalskipulagsvinnunni.

-Póstkassi þar sem hægt verður að skila miðum með ábendingum.
-Bæklingar með kynningu á aðalskipulagi og vinnuferli þess í stuttu máli.
-Fundir með stofnunum, íbúum og fulltrúum hagsmunaaðila.
-Dreifibréf
-Skipulagshópur

Skipulagshópur
Hlutverk skipulagshópsins er að kynna hagsmuni og sjónarmið hagsmunaaðila í Bolungarvík. Hópurinn mun vinna að skipulagstillögu sem mætir þörfum hagsmunaaðila án þess að skerða náttúruleg og menningarleg verðmæti svæðisins.

Skipulagsráðgjafi mun færa niðurstöður skipulagshópsins í ,,lögformlegan búning” en Bæjarstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar samþykkir endanlega skipulagstillögu.

Á meðal þeirra mála sem verða til umræðu eru:

• Verndun náttúru og menningarverðmæta
• Byggðamál
• Atvinnumál
• Samgöngumál
• Veitur og sorp
• Félags- og velferðarmál
• Opin svæði og útivist

Samsetning skipulagshópsins hefur verið ákvörðuð í samráði við hagsmunaaðila.
Nauðsynlegt er að takmarka stærð hópsins svo starfshæfni hans verði góð en fulltrúarnir eru málsvarar mikils fjölda manna og sjónarmiða. Þeir eru eftirfarandi (varamenn eru innan sviga):

• Bolungarvíkurkaupstaður:

• Félagsmál og íbúar

• Íþrótta- og útivistarfélög

• Ferðaþjónusta

• Land- og húseigendur í Skálavík

• Landbúnaður

• Sjávarútvegur


© Bolungarvíkurkaupstađur
Prentađ af bolungarvik.is

Smelltu hér til ađ prenta síđuna


Loka glugga