Viðburðir

  • Örnefnabolur
  • 9. september 2018 - 15. september 2018, Bolungarvík

Ástarvikan í Bolungarvík 2018

Ástarvikan 2018 verður sett sunnudaginn 9. september kl. 21:00 uppi á varnargarðinum Verði í Bolungarvík. 

Allir eru velkomnir á setninguna og sérstaklega eru ástfangin pör velkomin en þeim býðst að fá ástarlás til að innsigla ást sína með.

Kósíkvöld verður í Bjarnabúð í vikunni og verða birtar nánari upplýsingar um það á Facebook-síðu verslunarinnar. 

Hristur – ekki hrærður! er bragðarefur í boði Jóns bónda á Víkurskálanum alla vikuna, ekki missa af honum.

Sunnudagur 9. september

  • 11:30 Ástar-brunch á Víkurskálanum til 14:00, góðir drykkir með elskulegum afslætti alla vikuna 
  • 21:00 Opnun ástarvikunnar á Verði með ástarlásum, ástfangin pör fá lás


Mánudagur 10. september

  • 14:00 Tíu bestu ástarsögur allra tíma á bókasafninu, opið til 16:00


Þriðjudagur 11. september

  • 14:00 Tíu bestu ástarsögur allra tíma á bókasafninu, opið til 16:00
  • 20:00 Hreyfing, fyrirlestur um líkamlega og andlega vellíðan í félagsheimilinu


Miðvikudagur 12. september

  • 14:00 Tíu bestu ástarsögur allra tíma á bókasafninu, opið til 16:00
  • 18:00 Ástarvikuganga í surtarbrandsnámuna í Syðridal, lagt upp frá brúnni yfir Gilsá
  • 20:00 Jóga-kynning í íþróttahúsinu, allir velkomnir


Fimmtudagur 13. september

  • 14:00 Tíu bestu ástarsögur allra tíma á bókasafninu, opið til 16:00


Föstudagur 14. september

  • 19:00 Hlaðborð hlýjunnar í Einarshúsi, Pálínuboð, allir velkomnir
  • 20:00 Pottar og stjörnur í Musterinu opið til 22:00


Laugardagur 15. september

  • Réttir í Bolungarvík
  • 10:00 Samflot í Musterinu til 12:00
  • 19:00 Ástarfiskur á Einarshúsi
  • 21:00 Lifandi tónlist á Einarhúsi til 23:00


Ástarvikan í Bolungarvík - því að ástin er sterk eins og dauðinn og ástríðan vægðarlaus sem hel.