Viðburðir

  • Skjaldarmerki Íslands
  • 1. desember 2022

Fullveldisdagurinn

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918, tóku gildi milli Íslands og Danmerkur sambandslögin, sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi við Danmörku. 

Í sambandslögunum kom meðal annars fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. 

Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma og var Íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni þennan dag.