Viðburðir

  • Mýrarboltinn 2017
  • 4. ágúst 2017 - 7. ágúst 2017, 0:01 - 23:59, Bolungarvík

Mýrarboltinn í Bolungarvík

Mýrarboltinn verður haldinn í Bolungarvík um verslunarmannahelgina 2017. 

Nú í ár verður mótið haldið á þremur völlum sem verða settir upp nærri tjaldsvæðinu í Bolungarvík, sem er við íþróttahúsið og sundlaugina.

Búið er að staðfesta að hljómsveitin SSSól og rapparinn Emmsjé Gauti muni koma fram á hátíðinni en lokahófið verður í félagsheimilinu í Bolungarvík ásamt dansleikjum hátíðarinnar.

Skráning opnar 1. apríl gegnum netfangið myrarbolti@myrarbolti.com
Þar þarf að koma fram:
Nafn liðs
Nafn fyrirliða
Símanúmer og netfang

Benni Sig er drullusokkur Mýrarboltans í ár eða sá sem sér um skipulagningu og framkvæmd mótsins.