Viðburðir

  • Örnefnabolur
  • 29. júní 2017, 18:40, Félagsheimilið Bolungarvík

Örnefnaskrá

Jón Valdimar Bjarnason og Kári Guðmundsson tekið saman örnefnaskrá og fært Bolungarvíkurkaupstað. 

Tekið verður formlega við skránni kl. 18:40 fimmtudaginn 29. júní í Félagsheimili Bolungarvíkur. 

Örnefnaskráin verður sett upp og gerð aðgengileg á vefnum.

Bolungarvíkurkaupstaður hefur látið framleiða boli með hjarta úr örnefnum í Bolungarvík og nágrenni og eru örnefnin fengin úr skránni. Bolirnir verða til sölu á markaðstorginu laugardaginn 1. júlí.