Setning tónlistarskólans
Tónlistarskóli Bolungarvíkur verður settur miðvikudaginn 23. ágúst kl. 18:00 í sal tónlistarskólans í Sprota.
Á skólasetningunni verður starfsfólk skólans kynnt og rætt verður um starfsemina í vetur.
Þar gefst foreldrum og nemendum einnig tækifæri til að tala við kennara um námið og stundaskrána.