Viðburðir

  • Sveppi og Villi
  • 25. maí 2017, 13:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Sveppi og Villi

Hinir geysivinsælu og þrælskemmtilegu drengir Sveppi og Villi ætla að skemmta vestfirðingum í Félagsheimilið í Bolungarvík fimmtudaginn 25. maí kl 13:00. 

Það er ekki á hverjum degi sem þeir drengir eru með sýningu opna fyrir alla og því er um að gera að nýta sér þetta einstaka tækifæri fyrir fjölskylduna til að koma og skemmta sér saman. 

Sveppa og Villa er óþarfi að kynna enda hafa þeir um árabili verið í hópi langvinsælustu skemmtikrafta landsins og er saga þeirra vægast sagt vegleg; yfir 100 sjónvarpsþættir, 4 gríðarvinsælar kvikmyndir, metsölu- og verðlaunabækur og óteljandi framkomur á allskonar skemmtunum. 

Forsala miða verður hjá Benna í Einarshúsi (ath. enginn posi) og hefst mánudaginn 22. maí. 

Miðavaerð 2.500 kr. í forsölu, 2.900 kr. við hurð. Eitt verð óháð aldri. 

Að sýningu lokinni býðst gestum upp á að spjalla við Sveppa og Villa ásamt því að fá mynd af sér með þeim drengjum. 

Húsið opnar 30 mín. áður en að skemmtunin hefst. 

Sjáumst hress og kát í Bolungarvík, fimmtudaginn 25. maí kl 13:00.