Viðburðir

  • 17. júní
  • 17. júní 2022, Bolungarvík

17. júní 2022

Bolungarvíkurkaupstaður býður upp á hátíðardagskrá í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní.

Dagurinn hefst með víðavangshlaupi frá Ráðhúsinu. Skráning fer fram á staðnum og er hlaupið opið öllum aldurshópum.

Fleytukeppni verður í Hólsá þar sem keppendur mæta með fleytur sínar. Fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og hún skal að lágmarki vera 20 cm löng.

Haldið verður upp á 17. júní að þessu sinni í Ráðhússal Bolungarvíkur við Aðalstræti 10-12.

10:00 Víðavangshlaup
11:00 Fleytukeppni í Hólsá
12:20 Skrúðganga frá Ráðhúsi
12:30 Hátíðardagskrá í Ráðhússalnum
13:00 Púttmót

Lyftum okkur upp í Víkinni fögru á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Gleðilega þjóðhátíð!