Viðburðir

  • Act alone 2018
  • 9. ágúst 2018 - 11. ágúst 2018

Act alone

Hin einstaka Act alone leiklistarhátíð verður haldin 9.-11. ágúst 2018 á Suðureyri. 

Þetta er í fimmtánda sinn sem hátíðin er haldin sem er náttúrulega alveg einleikið. Enda er Act alone helguð einleikjum og á engan sinn líkan hér á landi. 

Aðgangur að öllum viðburðum Act alone er ókeypis einsog verið hefur frá upphafi. Þökk sé okkar einstöku styrktaraðilum. 

Á Act alone er boðið uppá það besta í heimi einleiksins hverju sinni. Sértu velkomin á Act alone því það kostar ekkert. 

Kynntu þér dagskrá ársins og sjáumst svo á Actinu.

Meiri upplýsingar á www.actalone.net