Hundrað ára fullveldisafmæli
Hundrað ára fullveldisafmæli Íslands verður fagnað kl. 14:00 þann 1. desember 2018 í Ráðhúsi Bolungarvíkur og endurbættum Ráðhússal.
Árið 1918 er eitt af merkari árum í sögu þjóðarinnar en 1. desember það ár varð Ísland frjálst og fullvalda ríki.
Af því tilefni munu bolvísk börn og ungmenni fara með ljóð, syngja og leika á hljóðfæri og sýna myndir í tilefni dagsins og boðið verður upp á þjóðlegar veitingar.
Tilvalið er að skrýðast þjóðbúningi á þessum degi.
Allir eru hjartanlega velkomnir.