Viðburðir

  • Ellen og KK
  • 1. desember 2018, 16:00, Þingeyri, 4.500 kr.

Kyrrlát jól með KK og Ellen

Jólatónleikar með KK og Ellen laugardaginn 1. desember 2018 kl. 16 í Þingeyrarkirkju.

Um jólin 2005 gáfu systkinin KK & Ellen út sinn fyrsta sameiginlega disk Jólin eru að koma.

Platan varð strax mjög vinsæl sökum einfaldleikans sem þar birtist og veitti hvíld frá ysi og þysi nútíma samfélags. Síðan hafa þau haldið tónleika um hver jól víðs vegar um landið. Í ár hverfa þau aftur til einfaldleikans sem einkenndi fyrstu plötuna þeirra: Einn gítar og þau tvö.

Miðaverð er 4.500 kr. og miðasala er á tix.is.