Sirkusinn kemur í bæinn!
Sirkus Íslands verður með farandsýningu laugardaginn 6. apríl 2019 kl. 17:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.
Bæjarsirkusinn er ný og spennandi farandsýning frá Sirkus Íslands.
Bæjarsirkusinn er ný, kraftmikil og spennandi farandsýning sem fer með áhorfendur inn í töfraheim sirkusins þar sem allt getur gerst! Óttalaus áhættuleikari, ótrúleg línudansmær, lipurt loftfimleikafólk og ljónatemjari flakka um landið og kynna þig fyrir sirkusnum á hátt sem þú hefur aldrei séð áður!
Bæjarsirkusinn er sirkussýning fyrir alla fjölskylduna þar sem töfrar sirkusins vakna til lífsins í félagsheimilum um land allt. Sýningin er liður í því að gera Sirkus Íslands að sirkus allra landsmanna og leyfa sem flestum að njóta gleðinnar. Sýningar Sirkus Íslands í sirkustjaldinu Jöklu hafa vakið mikla lukku undanfarin sumur en nú hefur verið gerð sýning sem getur ferðast um í skammdeginu.
Bæjarsirkusinn er klukkutími að lengd, en ekkert hlé er á sýningunni.
Sýningin er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Miðaverð 2.500-3.500 kr.