Viðburðir

  • Visindaveisla
  • 11. maí 2019, 12:00 - 16:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Vísindaveisla í Bolungarvík

Háskólalest Háskóla Íslands verður með vísindaveislu laugardaginn 11 .maí í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Í vísindaveislunni verða: 

  • Frábærar tilraunir
  • Dularfullar efnablöndur
  • Óvæntar uppgötvanir
  • Undraheimar Japans
  • Þrautir og áskoranir
  • Stjörnur og sólir
  • Náttúran og hafið
  • Fornleifar og furðuverk
  • Leikur með ljós og hljóð
  • Vindmyllur og vængir
  • Og fjölmargt annað

Fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna, allir eru hjartanlega velkomnir – enginn aðgangseyrir.

Háskólalestin hefur ferðast um landið síðan 2011 (en þá var Bolungarvík einmitt meðal fyrstu áfangastaða) við miklar vinsældir og eru áfangastaðirnir komnir á fimmta tug.