Vortónleikar Kvennakórs Ísafjarðar
Kvennakór Ísafjarðar fagnar vorinu með vortónleikum sínum í Félagsheimilinu í Bolungarvík 24. apríl kl 20:00.
Dagskráin er mjög fjölbreytt. Kórinn er á leiðinni á alþjóðlega kórakeppni til Pesaro á Ítalíu 27. apríl - 1. maí. Þar munum við keppa í þremur flokkum; kirkju-, akademískum- og poppflokki.
Á tónleikunum munum við flytja keppnislögin okkar og meðal annars verkið Gautede eftir ungverska tónskáldið Peter Tòth, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Einsöngvarar: Svanhildur Garðarsdóttir, Dagný Þrastardóttur, Ásrós Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Ósk Ólafsdóttir, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir og Karolína Sif Benediktsdóttir
Stjórnandi kórsins er Beata Joó og meðleikari er Pétur Ernir Svavarsson.
Miðaverð: 2500 kr., selt við innganginn, posi á staðnum.