Fara í efni

17. júní í Bolungarvík

Dags
17. júní
Kl.
10:00 - 13:30
Staðsetning
Félagsheimili Bolungarvíkur
Lyftum okkur upp í Víkinni fögru á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Deildu

10:00 Víðavangshlaup

  • Skráning fer fram á staðnum og er hlaupið opið öllum aldurshópum.

11:00 Fleytukeppni í Hólsá

  • Allir krakkar eru hvattir til að smíða sér fley í keppnina og taka þátt.
    Reglurnar eru þær að fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og hún skal að lágmarki vera 20 cm löng.
  • Verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í formi gjafabréfa

12:30 Skrúðganga frá Ráðhúsi

12:40 Hátíðardagskrá í Félagsheimilinu

  • Fjallkonan kemur til okkar, við syngjum þjóðsönginn og nýstúdent flytur hátíðarrræðu. Á borðstólum verða vöfflur og kaffi fyrir gesti.

Gleðilega þjóðhátíð!