Gámastöð
- Tjarnarkambur 1 415 Bolungarvík
| Musteri vatns og vellíðunar | Virkir dagar 06:00-21:00 |
| Bæjarskrifstofa Bolungarvíkur | Mánudaga - fimmtudaga 10:00-14:00 |
| Gámastöð | Mánudaga kl. 15:00-18:30 Að auki 1. júní-1. september |
Með þátttöku okkar allra stuðlum við að hreinna umhverfi. Hér finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft til að flokka rétt og meðhöndla úrganginn á réttan hátt.
Á hverju heimili eru tvö sorpílát
Íbúar og fyrirtæki geta einnig farið með flokkað sorp og úrgang á gámastöð

Með síðustu breytingum á lögum um meðhöndlun úrgangs var komið á samræmdu flokkunarkerfi yfir allt land. Þetta er mikilvægt fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi og stórt framfaraskref, þar sem sýnt hefur verið fram á að sérsöfnun á hráefni leiðir til meiri og betri flokkunar.
Nýja flokkunarkerfið byggir á sérsöfnun á eftirfarandi flokkum við íbúðarhús;


Hvert heimili er með tvö sorpílát:
Tunnurnar eru losaðar samkvæmt sorphirðudagatali á hálfsmánaðar fresti, þar sem almennt sorp og lífrænn eldhúsúrgangur er tekið eina vikuna og sorp til endurvinnslu þá næstu.

Setjið almennt sorp í svarta, stóra hólfið.
Athugið: Þetta er úrgangur sem fer í urðun eða brennslu.
Setjið lífrænan eldhúsúrgang í brúna hólfið í almennu tunnunni, ekki svarta hólfið í endurvinnslutunnunni.
Lífræna eldhúsúrganginum er umbreytt í moltu sem t.d. er hægt að nýta í landgræðslu. Nota skal því eingöngu jarðgeranlega poka, þessir pokar fást td. hjá Terru og eru úr lífrænni sterkju.
Setjið hreinan pappír og pappa í hólfið fyrir pappír og pappa í endurvinnslutunnuna, ath ekki í svarta hólfið.
Athugið: Pappi á ekki að vera í plastpokum. Hann á að setja beint í endurvinnslutunnuna. Það má ekki blanda plasti og pappa í sama hólf.
Setjið plastumbúðir í svarta hólfið í endurvinnslutunnunni.
Þrífið plastumbúðir og notið glæra plastpoka ef pokar eru notaðir.
Ef ekki er hægt að þrífa umbúðirnar, eiga þær heima með almennu sorpi.
Eftirfarandi úrgangsflokkar eiga allir að fara á gámastöðina við Tjarnarkamb 1
Skilagjald er hægt að fá endurgreitt á endurvinnslustöðvum eða í gámastöðinni. Einnig er hægt að gefa þessar umbúðir til styrktar félagasamtökum.
Athugið: Garðaúrgangur skal fara á gámastöðina. Lífrænn úrgangur úr garðinum á ekki að fara í sorptunnur. Einnig er hægt að koma sér upp safnhaug eða safnkassa í eigin garði þar sem úrgangurinn rotast og verður að gróðurmold.
Athugið: Spilliefni innihalda hættuleg efni og skal því fara með þau á gámastöðina þar sem þau eru meðhöndluð sérstaklega.
Til að fyrirbyggja misskilning þá þurfa íbúar ekki að greiða fyrir skil stærri raftækja.
Þó að smærri nytjahlutir komist í tunnurnar, er þó æskilegt er að fara með þá í gámastöðina.
Æskilegt er að sorptunnur séu staðsettar við framanvert hús og mikilvægt að gæta þess að aðgengi við losun sé ætíð sem best. Afar mikilvægt er að íbúar moki snjó frá sorptunnum. Festingar á tunnum skulu vera þannig að auðvelt sé að losa þær og festa aftur.
Tunnur skulu ekki fylltar meira en svo að þeim sé hægt að loka. Yfirfullar tunnur geta valdið vandræðum og sóðaskap þegar þær eru losaðar. Yfirfullar tunnur verða ekki losaðar og er íbúum bent á gámastöð.