Fara í efni

Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur - fyrri sýning

Dags
12. febrúar
Kl.
16:30 - 18:30
Staðsetning
Félagsheimili Bolungarvíkur
Deildu

Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur verður fimmtudaginn 12. febrúar í Félagsheimili Bolungarvíkur. Eins og fyrri ár er árshátíðin öllum opin og verða tvær sýningar.
Húsið opnar 30 mínútum fyrir sýningu.

Árgangar skólans sýna leik- og söngatriði, unglingastigið sýnir leikritið Matilda.

Selt verður inn við innganginn, miðaverð er 1000 krónur. Nemendur leik- og grunnskóla Bolungarvíkur borga ekki inn á hátíðina. Hægt verður að greiða með korti í anddyri og pening innar í rýminu.

Ekkert hlé verður á sýningunni og engin veitingasala.

ATH: dægradvöl lokar kl. 14.20 þennan dag, fimmtudaginn 12. febrúar

Venjulegur skóladagur, samkvæmt stundatöflu, verður föstudaginn 13. febrúar.