Fara í efni

Fjölskyldudagskrá sjómannadagsins í Bolungarvík

Dags
6. júní
Kl.
13:00 - 15:00
Staðsetning
Blungarvíkurhöfn
Deildu

Fjölskyldudagskrá sjómannadagsins í Bolungarvík verður á sama stað og í fyrra, á Bolungarvíkurhöfn.

Björgunarsveitin verður að sjálfsögðu á sínum stað, með leiki og fjör!

Róðrakeppnin verður á sínum stað, og eru vegleg verðlaun fyrir fyrsta sætið!

Allir keppendur sigurliðsins fá:

  • 12"pizzu af Einarshúsinu

  • Fiskiöskju frá Jakobi Valgeir

  • Lax frá Arctic Fish

  • Tilboð frá Sjoppan mín

  • Gjafaöskju frá Örnu ehf.

Við hvetjum fólk til þess að hópa sig saman í 7 manna lið og gera keppnina í ár æsispennandi!
Skráning í róðrakeppni fer fram á staðnum.

Flott, Biggi Olgeirs og Vigdís Hafliðadóttir koma til okkar í víkina og halda uppi blússandi fjöri!

Fiskiveislan verður á sínum stað, enda sló hún í gegn í fyrra, og í ár verður þetta ekki síðra! Arna býður upp á frían ís meðan birgðir endast!

Hoppukastalar, andlitsmálning, tónlist og fjör! Þessu vilt þú EKKI missa af!

Hlökkum til að sjá ykkur!