Fara í efni

Leikhópurinn Lotta - Litaland

Dags
6. júní
Kl.
11:30 - 12:30
Staðsetning
Íþróttamiðstöðin Árbær
Deildu

Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna.

Sýningin er um klukkustund og gott er að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.