Kassinn minn er skapandi vinnustofa þar sem þátttakendur fara í persónulegt ferðalag sjálfskoðunar í gegnum verkefni sem hefst með tómum kassa. Í gegnum ferlið breytist kassinn smám saman og endurspeglar að lokum innri heim þátttakenda á táknrænan hátt.
Vinnustofan er sett upp sem öruggt rými þar sem áhersla er lögð á persónulegt ferli fremur en listræna útkomu. Þátttakendur vinna á sínum forsendum og hafa fullt vald yfir því viðfangsefni sem þeir velja sér og hversu miklu þeir kjósa að deila með hópnum. Engin fyrri reynsla af skapandi vinnu né tæknileg færni er nauðsynleg.
Heilsubærinn í Bolungarvík stendur fyrir þessum viðburði

