Laugardaginn næsta, 30. maí verður plokkdagur í Bolungarvík.
Nú styttist óðum í sjómannadaginn í Bolungarvík og því tilvalið að taka til hendinni hér í bænum. Við hvetjum öll til þess að taka þátt í að gera bæinn snyrtilegri.
Hægt verður að nálgast poka og tangir við íþróttamiðstöðina og í Bernódusarlundi.
Plokkarar eru beðnir um að setja ruslapoka og skila töngum við íþróttamiðstöðina eða Bernódusarlund. Ef pokar eru þungir má skilja þá eftir á sýnilegum stað við götu og verða þeir þá sóttir.
Fyrirtæki eru hvött til þess að taka til í kringum sín fyrirtæki.
