Fara í efni

Skrautfjaðrir Bolungarvíkur

Dags
2. júlí kl. 17:00 -
4. júlí kl. 15:00
Staðsetning
Bolungarvík
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.
Deildu

Eins og undanfarin ár mun efri bærinn skreyta allt, hátt og lágt í rauðum lit og neðri bærinn skreytir í bláum. Litirnir tákna hafið og eldmóð bæjarbúa. Fyrirtæki bæjarins taka sér græna litinn til skreytinga. Sjá kort hér!

Dómnefnd mun skoða húsin og velja vinningshafa.

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.

  • 50.000 kr. fyrsta sæti
  • 30.000 kr. annað sæti
  • 20.000 kr. þriðja sæti

Dómnefnd fer um bæinn og skoðar húsin eftir brekkusönginn á föstudaginn.

Úrslitin verða kynnt á laugadaginn 4. júlí kl. 15:00.

Það er góð hugmynd að hver litur haldi sambandi á milli íbúa og komi upp skemmtilegri stemmingu fyrir skrúðgönguna á föstudagskvöldið.
Í ár ætlar Bolungarvíkurkaupstaður að hvetja hverfin til að hittast saman að grilla fyrir skrúðgönguna.

Hugmyndaflugið er ykkar sterkasta vopn í leiknum og takmörk eru engin!
Hægt er að kaupa ýmsan varning Bjarnabúð í litunum góðu. 

Einnig er hægt að kaupa fána hjá Fánasmiðjunni á Ísafirði.