Hverfin skipa sér sjálf liðstjóra og láta í sér heyra í skrúðgöngunni - sjá kort!
Eftir götugrillið hefst skrúðganga litanna!
Rauðir safnast saman á grasinu fyrir utan Stigahlíðablokkina og hefst skrúðganga þeirra þaðan.

Bláir safnast saman á túninu fyrir aftan Einarshús og hefja sína göngu þar

Báðir litir mætast svo þegar rauðir koma niður Þjóðólfsveginn og bláir komi upp Skólastíginn. Báðir litir ganga svo saman inn Völusteinsstrætið og að Stebbalaut, þar sem brennan verður tendruð og raddböndin verða þanin.
