Fara í efni

"Nansen á Þingeyri" fyrir eldri borgara

Dags
10. september
Kl.
14:00 - 15:00
Staðsetning
Hvíta húsið - safnaðarheimili kirkjunnar
Sögustund fyrir eldri borgara um Friðþjóf Nansen sem kom á Þingeyri árið 1888 og dvaldi þar áður en hann hélt í sinn frækna leiðangur á Grænlandsjökul og varð heimsfrægur. 
Deildu

Nansen á Þingeyri

Söguleikurinn, Nansen á Þingeyri, segir af einni eftirminnilegustu heimsókn í sögu þorpsins Þingeyri. En það er án efa þegar landkönnuðurinn norski Friðþjófur Nansen dvaldi á eyrinni um tveggja vikna skeið áður en hann lagði í sína fræknu för á Grænlandsjökul árið 1888. 
Hvað var Nansen að gera allan þennan tíma vestra? 
Það kemur allt í ljós í þessari einstöku leiksýningu sem hefur verið sýnd við allra bestu viðtökur.

Elfar Logi Hannesson er bæði leikari og höfundur leiksins. Búningahönnuður er Þ. Sunnefa Elfarsdóttir og leikstjórn annast Marsibil G. Kristjánsdóttir. 

Frítt er inn á sýninguna.