Bæjarstjóri
Jóhanna Ósk Halldórsdóttir
Netfang: johanna@bolungarvik.is
Sími: 8621841

Undanfarin ár hefur Jóhanna starfað sem svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum og framkvæmdastjóri Sæferða, dótturfélags Eimskips. Hún býr yfir fjölbreyttri reynslu af rekstri og stjórnun, og þekkir vel til samfélagsins á Vestfjörðum. Jóhanna Ósk er gift Gunnari Þórissyni og saman eiga þau fjögur börn.
Jóhanna Ósk er fyrsta konan til að gegna embætti bæjarstjóra Bolungarvíkur og tekur hún við starfinu af Jóni Páli Hreinssyni sem verið hefur bæjarstjóri undanfarin 10 ár.
