Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga lögheimili á miðmiðunardegi þann 8. apríl 2026. Hægt er að kanna hvar þeir eiga að kjósa á vef Þjóðskrár.
Kjördagur 16. maí
Kjörstaður Félagsheimili Bolungarvíkur
Kjörstaður opinn 10:00-21:00.
Talning fer fram í Félagsheimili Bolungarvíkur klukkan 21:00.
Kjósendur bera ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að senda atkvæðabréfið í pósti, láta annan aðila koma því til skila eða skila því beint í ráðhúsið í Bolungarvík. Atkvæðabréfið skal senda til þess sveitarfélags þar sem kjósandi er á kjörskrá. Kjósendur sem greiða atkvæði hjá sýslumanni í sínu umdæmi geta einnig sett bréfið í atkvæðakassa þar.
Athygli er vakin á vefnum kosning.is en þar verða birtar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar 2026.