Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst 2026

Kjörstaður við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 verður í sal Ráðhúss Bolungarvíkur, Aðalstræti 12-14. 

Kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 til 21:00 á kjördag.

Inngangur verður að sunnanverðu ráðhúsinu, og hjólastólaaðgengi, ásamt bílastæði fyrir hreyfihamlaða verður tryggt við Miðstræti. Bílastæði verða fyrir framan bæjarskrifstofu Bolungarvíkur. 

/cdn/media/Upplysingamyndir/Inngangur.png?v=1787141600

Hjá sýslumanninum á Vestfjörðum má greiða atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins virka daga sem hér segir:

  • Ísafjörður, Hafnarstræti 1, kl. 9:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-14:00.
  • Hólmavík, Hafnarbraut 25, 2.hæð, kl. 09:00-13:00 en föstudaga kl.9:00-12:00.
  • Patreksfjörður, Aðalstræti 92, kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstud. kl. 09:00-12:00.