Fara í efni
Laus störf

Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir lausar stöður skólaárið 2026-2027

Umsóknarfrestur: 16.07.2026
Hlutastarf
Umsemjanlegt starfshlutfall

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 börn á aldrinum fimm til sextán ára. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur mið af þroska og hæfni nemenda. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og samvinnu kennara. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsmanna og foreldra.

Leitað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum starfsmönnum með þekkingu og mikinn áhuga á skólastarfi.


Umsjónarmaður heilsuskóla og dægradvalar

  • 60% staða
  • Vinnutími 11:30-16:00.
  • Heilsuskólinn er fyrir 1.-4. bekk og er frá kl. 13:00-14:00.
  • Dægradvöl er fyrir Malir ( 5 ára), 1.-2. bekk og er frá kl. 14.00-16.00.
  • Í starfinu felst umsjón, skipulag og frágangur ásamt samstarfi við kennara 5 ára deildar / þjálfara heilsuskólans.

Stuðningsfulltrúi

  • 60% -100 % staða
  • Fjölbreytt starf í samstarfi við stoðþjónustu skólans

Skólaliði

  • 65 % staða
  • Vinnutími ca. 09:00-14:00

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót í samstarfi
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Vilji til að taka þátt í leiðandi starfi skólans

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið gudbjorg@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Ráðið verður í stöðuna frá og með 15. ágúst 2026

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, skólastjóri í síma 4567249, netfang: gudbjorg@bolungarvik.is

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir
Skólastjóri
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir
Skólastjóri