Fara í efni
Laus störf

Leikskólinn Glaðheimar auglýsir eftir leikskólakennara

Umsóknarfrestur: 31.07.2026
Fullt starf

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara í 100% starf frá 1. ágúst. 

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli þar sem eru um 30 börn. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
  • Reynsla að vinna með börnum er æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, samviskusemi og jákvæðni.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Hreint sakarvottorð.

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar.
  • Frítt fæði – morgunmatur, hádegismatur og kaffitími.
  • Forgangur barna í leikskóla.
  • Afsláttur af leikskólagjöldum.

Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundið starf að ræða til eins árs og greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf. 
Laun og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. 

Umsókn skal senda á leikskólastjóra á netfangið astrosv@bolungarvik.is. Fólk óháð kyni og uppruna er hvatt til að sækja um. Frekari upplýsingar um starfið hjá leikskólastjóra í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið hér fyrir ofan.

Ástrós Þóra Valsdóttir
Leikskólastjóri