Leikskólinn Glaðheimar Bolungarvík auglýsir eftir sérkennslustjóra.
Leikskólinn Glaðheimar Bolungarvík auglýsir eftir sérkennslustjóra í 50% starf frá 1. ágúst.
Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í faglegu og uppbyggilegu starfsumhverfi þar sem velferð, þroski og þátttaka barna eru í fyrirrúmi.
Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli þar sem eru um 30 börn. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk vegna barna með sérþarfir.
- Samstarf við foreldra, fagaðila og aðrar stoðþjónustur.
- Gerð einstaklingsáætlana og eftirfylgni með þeim.
- Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.
- Þátttaka í þróun faglegs starfs og innleiðingu verklags tengdu sérkennslu og inngildingu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Framhaldsmenntun eða reynsla á sviði sérkennslu er æskileg.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og faglegur metnaður.
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Stytting vinnuvikunnar.
- Frítt fæði – morgunmatur, hádegismatur og kaffitími.
- Forgangur barna í leikskóla.
- Afsláttur af leikskólagjöldum.
Mögulegt er að skoða að hækka starfshlutfall og þá sem leikskólakennari ef slíkt hentar umsækjanda og þörfum leikskólans.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf.
Laun og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Umsókn skal senda á leikskólastjóra á netfangið astrosv@bolungarvik.is . Fólk óháð kyni og uppruna er hvatt til að sækja um. Frekari upplýsingar um starfið hjá leikskólastjóra í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið hér fyrir ofan.
