Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 börn á aldrinum fimm til sextán ára. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur mið af þroska og hæfni nemenda. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og samvinnu kennara. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsmanna og foreldra.
Leitað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum starfsmönnum með þekkingu og mikinn áhuga á skólastarfi.
Skólaliði
- 65 % staða
- Vinnutími ca. 09:00-14:00
Menntunar og hæfniskröfur:
- Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót í samstarfi
- Ábyrgð og stundvísi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Vilji til að taka þátt í leiðandi starfi skólans
Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Ráðið verður í stöðuna frá og með 15. ágúst 2026
Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249, netfang: halldoras@bolungarvik.is
