Fara í efni
Laus störf

Sundþjálfari sunddeildar UMFB

Umsóknarfrestur: 05.07.2026
Hlutastarf

Sunddeild UMFB leitar að sundþjálfara fyrir næstast starfsár sem hefst 1. september. 

Deildin er í stöðugum vexti og leitum við að öflugum og áhugasömum þjálfara sem er tilbúinn að vinna með okkur. Ef þú hefur þjálfað eða æft sund áður þá viljum við gjarnan heyra nánar um það. 

Við hvetjum öll, 18 ára og eldri, til að sækja um. 

Starfssvið

  • Umsjón með skipulagningu æfinga og móta
  • Umsjón með þátttöku í mótum 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þjálfaramenntun kostur
  • Þekking á Sportabler kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði
  • Brennandi ástríða fyrir að setja mark sitt á starfið iðkendum til heilla
  • Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni
  • Hreint sakavottorð er skilyrði 

Nánari upplýsingar veitir stjórn Sunddeildarinnar sundumfb@gmail.com