Fara í efni
11.09.2026 Fréttir

1. fundur menningar og ferðamálaráðs

Deildu

Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkur hélt sinn fyrsta fund á nýju kjörtímabili þann 2. september síðastliðinn.

Fyrir lágu fjórar umsóknir um styrki.

1. Samþykkt var að veita þeim Sólveigu Sigurðardóttur og Guðbjörgu Stefaníu Hafþórsdóttur 10.000 króna styrk til verkefnisins Skjól í Skálavík, en viðburðurinn hafði þegar farið fram þann 29.ágúst. Þar hittust konur til að sýna samstöðu gegn ofbeldi, sem er hluti af prjónaverkefni Kvennaathvarfsins.

2. Þá fékk Greta Lietuvninkaitė 50.200 króna styrk fyrir verkefnið “Write it out” eða Gul ritsmiðja.
Um er að ræða samvinnuverkefni með Bókasafni Bolungarvíkur, þar sem boðið er upp á ritsmiðjur til að efla andlega vellíðan, stuðla að félagslegri virkni, með áherslu á persónulegan þroska og tilfinningastjórnun og tengjast þannig Gulum September, sem helgaður er vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.
Dagsetningarnar verða auglýstar sérstaklega þegar nær dregur.
Smiðjurnar eru ókeypis og ætlaðar öllum.

3. Einnig fékk Kristín Mjöll Jakobsdóttir í samvinnu við Elfar Loga Hannesson og Pamelu De Sensi, 100.000 króna styrk til uppsetningar á hinu sígilda tónverki Pétri og úlfinum fimmtudaginn 29.október í Bolungarvík. Sýningin stendur saman af fimm hljóðfæraleikurum og einum leikara, Elfari Loga, sem er öllum vestfirðingum að góðu kunnur.

4. Maraþonmennirnir, þeir Árni Heiðar Ívarsson og Fjölnir Ásbjörnsson, sóttu um 100,000 króna styrk til að spila og syngja 10-12 þekkt barnalög fyrir börn í leik- og grunnskóla, sem og fyrir aldraða, í þremur heimsóknum. Umsókn var hafnað að þessu sinni þar sem sjóðir nefndarinnar eru tæmdir fyrir árið.

5. Undir liðnum önnur mál var vilji nefndarinnar til að halda Þrettándagleðina ræddur. Nefndin hefur skynjað mikinn vilja á meðal bæjarbúa að halda þessum rótgróna viðburði á lofti eftir mögur ár og hyggst koma honum aftur á dagskrá. Standa vonir ráðsins til þess að með samtakamætti bolvíkinga geti álfar, englar, púkar og aðrir, sameinast í dansi í kringum varðeldinn á nýju ári.

Menningar-, og ferðamálaráð minnir á að næsti umsóknarfrestur styrkja er til 1.febrúar 2027.