Bolvíkingafélagið heldur upp á 80 ára afmæli sitt sunnudaginn 27. september 2026 kl. 15:00 í gamla Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Öllum félagsmönnum og mökum þeirra er boðið til fagnaðarins. Boðið verður upp á kaffi, gos og veglegt veisluborð. Einnig verða léttvín og bjór til sölu fyrir þá sem það kjósa.
Samkvæmt upplýsingum frá félaginu verður afmælið kynnt nánar þegar nær dregur. Það verður búinn til viðburður á Facebook þar sem þátttakendur verða beðnir um að melda sig svo hægt sé að áætla fjölda gesta.
Fyrirkomulag samkomunnar verður að hluta til með svipuðum hætti og í Messukaffinu, en megináherslan verður á að hittast, spjalla saman og eiga góða stund. Þau sem hafa áhuga á að flytja ávarp, vera með skemmtiatriði eða tónlistarflutning eru hvött til að hafa samband við stjórn félagsins.
Bolvíkingafélagið hvetur félagsmenn til að taka daginn frá og bóka tímann frá kl. 15:00 til 17:00 þann 27. september.