Fara í efni
12.10.2026 Tilkynningar

830. fundur bæjarstjórnar

Deildu

830. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarins, ráðhúsinu Aðalstræti, þriðjudaginn 15. september 2026 og hefst kl. 17:00.

 

Dagskrá:

  1. 2606041 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026

    Lagðir fram til samþykktar viðaukar nr. 08-10 við fjárhagsáætlun ársins 2026, að fenginni samþykkt bæjarráðs á 2507. fundi þess þann 6. október 2026. 

    Viðauki nr. 08 uppfærir áætlaðan kostnað vegna vaxta og verðbóta af lánum. Fjármagnskostnaður samstæðunnar hækkar um 72,87 m.kr. 

    Viðauki nr. 09 uppfærir tekjuáætlun miðað við nýjustu upplýsingar. Að teknu tilliti til tengdra útgjalda batnar rekstrarniðurstaða samstæðunnar um 71,17 m.kr. 

    Viðauki nr. 10 ráðstafar 10,76 m.kr. af áður áætluðu viðhaldsfé til tiltekinna verkefna og þjónustu. Um er að ræða tilfærslu innan fjárhagsáætlunar sem hækkar ekki heildarútgjöld. 

    Samanlagt versnar áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar um 1,70 m.kr. og eigið fé lækkar sem því nemur. Áætlaðar skuldir við lánveitendur hækka um 56,35 m.kr. vegna uppfærslu skuldabréfaáætlunar.

  2. 2610032 - Tilnefning í stjórn Náttúrustofu Vestfjarða 2026-2030

    Lögð fram til staðfestingar tilnefning Þorbergs Haraldssonar sem aðalfulltrúa Bolungarvíkurkaupstaðar í stjórn Náttúrustofu Vestfjarða. Þorbergur var kjörinn í stjórn á samráðsfundi aðildarsveitarfélaganna þann 30. september 2026. Fundargerð samráðsfundarins fylgir málinu

  3. 2609014 - 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti

    Lögð fram til kynningar og umræðu þinggögn fyrir 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti. Gögnin fjalla um fjárhagsáætlun Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun, ásamt tillögum um árstillag sveitarfélaganna og stjórnarlaun

  4. 2609075 - Endurskoðun reglna um frístundastyrk

    Lögð fram tillaga fræðslumála- og æskulýðsráðs að breytingum á reglum um frístundastyrk. Jafnframt leggur ráðið til að árlegur styrkur hækki úr 40.000 kr. í 80.000 kr. Tillaga um hækkun styrksins er lögð fram til umræðu vegna fjárhagsáætlunar ársins 2027 og verður tekin til endanlegrar afgreiðslu við samþykkt hennar

  5. 2609071 - Kosning í ungmennaráð

    Lögð fram tillaga fræðslumála- og æskulýðsráðs frá 1. október 2026 að eftirfarandi fulltrúar verði kjörnir í ungmennaráð Bolungarvíkurkaupstaðar: 

    Aðalfulltrúar: Salvör Sól Jóhannsdóttir Mikael Máni Meyvant Stefánsson Vagnfríður Elsa Kristbjörnsdóttir Breki Þór Arnarsson Kristín Líf Kristjánsdóttir 

    Varafulltrúar: Sylvía Rós Hermannsdóttir, Sigurborg Sesselja Skúladóttir og Júlía Magdalena Mazur. 

    Tillagan er lögð fram til afgreiðslu bæjarstjórnar, sbr. 3. gr. erindisbréfs ungmennaráðs

  6. 2609007F - Bæjarráð - 2505

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2505. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 22. september 2026

  7. 2609022F - Bæjarráð - 2506

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2506. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 30. september 2026

  8. 2610001F - Bæjarráð - 2507

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2507. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 6. október 2026.

  9. 2609008F - Hafnar- og atvinnumálaráð - 26 02

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð fundar nr. 26/02 í hafnar- og atvinnumálaráði, sem haldinn var 28. september 2026

  10. 2609009F - Fræðslumála- og æskulýðsráð - 9/26

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð 9/26. fundar fræðslumála- og æskulýðsráðs, sem haldinn var 1. október 2026

  11. 2609010F - Umhverfismálaráð - 10/26

    Lögð fram til staðfestingar fundargerð 10/26. fundar umhverfismálaráðs, sem haldinn var 1. október 2026.